Samstarfsvettvangur fræðslu, menntunar og rannsókna á sviði netöryggis á Íslandi
Eyvör NCC-IS er hæfnisetur í netöryggi, áður nefnt samstarfs-vettvangur fræðslu, menntunar og rannsókna á sviði netöryggis á Íslandi. Markmið samstarfsins er að efla netöryggisgetu á landsvísu og styðja við íslenskt netöryggissamfélag sem og að tryggja öflugt Evrópusamstarf á sviði netöryggismála. Eyvör NCC-IS er stofnað á grundvelli reglugerðar ESB 2021/887 og mun vinna í nánu samstarfi við Hæfnisetur Evrópu í netöryggi (e. European Cybersecurity Competence Centre – ECCC).
Eyvör NCC-IS mun markvisst styðja við íslenska aðila úr atvinnulífinu, rannsóknasamfélaginu og hinu opinbera í að efla rannsóknir og auka hæfni, þekkingu og þróun á sviði netöryggis. Eyvör NCC-IS auðveldar einnig íslenskum aðilum aðgengi að alþjóðlegum sóknarfærum.
Eyvöru NCC-IS styður við fyrirtæki og stofnanir með styrkveitingum og styður þannig við nýsköpun í netöryggi. Eyvör vinnur að því markmiði að íslensk fyrirtæki, háskólar og vísindafólk verði meðal leiðandi aðila í netöryggi.
Með sameiginlegu átaki samstarfsaðila getur Eyvör NCC-IS með aðgangi að tækni og sérfræðiþekkingu atvinnulífsins sem og rannsóknasamfélagsins, byggt upp og stutt við skilvirkt þekkingarsamfélag á sviði netöryggismála á Íslandi.